Myndband

Skrifað af Kristinn Ingi Valsson
Mánudagur, 18 Janúar 2010 21:14


Ég rakst á myndband á Hófapresssunni af Kormáki vom Lipperthof og ákvað að skella því hér inn. 
Kormákur er einmitt undan meri frá okkur sem heitir Kolfinna frá Hauganesi, sem gekk sjaldan undir öðru nafni en Græjan þegar hún var hjá okkur, og þarf varla að útskýra það neitt frekar. Eins og sést á þessu mynbandi þá er Kormákur mikill gæðingur og hefur meðal annars fengið 10 fyrir tölt.
Hægt er að skoða myndbandið með því að klikka á http://www.hofapressan.is/watch_video.php?v=eefa20115d0117b

Námskeið hjá Mette Mannseth

Skrifað af Bjarni Valdimarsson
Föstudagur, 15 Janúar 2010 22:09

Já þá erum við félagarnir hérna á Nesinu byrjaðir á námskeiði hjá Mette Mannseth. Við fórum í fyrsta skipti í dag og held ég að okkur lítist báðum bara bærilega á þetta. Hjá mér var þetta nokkuð kapphlaup við tímann en með þrotlausri vinnu Þóris Áskelssonar sjúkraþjálfara tókst mér að komast í hnakkinn.

Við fáum að leggja línurnar nokkuð sjálfir á þessu námskeiði og Mette aðstoðar okkur með það sem við viljum helst leggja áherslu á. Dandi fór með Nótu og fékk ábendingar um aðferðir við gangsetningu en ég fór með Eldjárn og var aðallega með pælingar í sambandi við form og burð.

Næsta skipti er eftir hálfan mánuð og verðum við vonandi komnir eitthvað lengra áleiðist þá.

"Bak"slag í útreiðarnar

Skrifað af Bjarni Valdimarsson
Laugardagur, 09 Janúar 2010 23:12

Þegar allt var að komast af stað kom bölvað bakslag í útreiðarnar hjá mér. Bakmeiðslin sem ég varð fyrir á aðgangadag tóku sig upp þegar ég var að járna í dag og er nú alls óvíst hvenær ég get farið að ríða út aftur. Ég legg þó alllt kapp á að verða orðinn nægilega rólfær um næstu helgi til að komast á námskeiðið hjá Mette en ég er ekki nema hæfilega bjartsýnn.

Við Dandi vorum búnir að járna Neista að framan ég ég var að leggja frá mér raspinn þegar ég fann sárann sting í mjóbakinu og missti mátt niður í fæturna. Dandi og pabbi röðuðu saman sagböggum sem ég gat lagst á, í von um að þetta liði hjá en svo var ekki. Ég staulaðist því heim þar sem ég hef legið síðan og úðað í mig verkjalyfum.

Allt að komast á fullt á Nesinu

Skrifað af Bjarni Valdimarsson
Fimmtudagur, 07 Janúar 2010 13:03
img_0667

Sólsker er kominn á hús og verður járnaður
einhvern allra næstu daga

Jæja þá er loksins að komast líf í hestamenn á Hauganesi eftir haustdvalann. Stuttu fyrir jól voru fyrstu hrossin tekin inn. Þá kom Nóta úr eins og hálfs mánaðar tamningu hjá Gísla og Metta á Þúfum. Með henni tókum við inn tvær merar, Gloríu undan Glóu frá Hauganesi og Orion frá Möðrufelli sem verður í frumtamningu hjá okkur í vetur og Glóu móðir hennar sem var í lítilsháttar sjúkrameðferð. Til stóð svo að taka fleira inn á milli jóla og nýárs en af óviðráðanlegum orsökum frestaðist það og voru reiðhestar vetrarins teknir inn 2. janúar. Þessa dagana erum við á fullu við járningar og þjálfun að hefjast og má nú engan tíma missa þar sem vertíðin er að byrja og mikið af keppnum og námskeiðum í boði.

Rólegt á nesinu

Skrifað af Kristinn Ingi Valsson
Þriðjudagur, 17 Nóvember 2009 20:07

Það hefur ekki farið mikið fyrir fréttum hér á síðunni undanfarið eins og allra glöggustu menn hafa tekið eftir. Það er þó eitt og annað sem á daga okkar hefur drifið.
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL